Haxa
EnglishBóka fund

Eitt kerfi fyrir allt hótelið

Haxa er hótelkerfi smíðað frá grunni fyrir íslensk hótel. Bókanir, móttaka, veitingar, þrif, vaktir og bókhald á einum stað.

Fyrir stærri hótel með teymi í hverri deild og fyrir hótelkeðjur.

Markaðurinn · Sala

Herbergin þín, á öllum sölurásum

Verðin fara á 60+ sölurásir og þína eigin bókunarvél, í réttum gjaldmiðli. Hver bókun lendir beint í kerfinu.

  • Sölurásir
  • Bókunarvél
  • Verð í evrum og krónum
  • RoomPriceGenie

Allt húsið · Eigandinn

Allar deildir, eitt kerfi

Móttaka, þrif, veitingar, bókhald og sími gestsins hafa hvert sinn skjá í sama kerfinu. Ekkert að tengja, ekkert sem brotnar.

Herbergin · Þrif

Herbergin verða að áætlun

Útritanir verða að verkefnum, raðað eftir forgangi og send á þann sem er á vakt. Móttakan sér „Tilbúið“ um leið og herbergið er tilbúið.

  • Símaapp
  • Úttektir
  • Bilanir og óskilamunir
  • Vaktaplan sem veit hvað er bókað

Innritun · Gesturinn

Innritun á eigin tæki

Anna innritar sig með hlekk á leiðinni frá flugvellinum. Sami kóði opnar útidyrnar og herbergi 204 og hættir að virka við útritun.

  • Ekkert app að sækja
  • Innritun á netinu
  • Einn kóði fyrir allar dyr
  • 30+ lásakerfi
  • Wi-Fi, leiðarvísir og beiðnir
  • Þjónusta á herbergið
  • Í útliti hótelsins

Móttakan · Gestamóttaka

Morguninn á einum skjá

Komur, brottfarir, greiðslur og beiðnir dagsins á einum stað. Innritun Önnu, kóðinn og beiðnirnar hennar eru þegar komnar inn.

  • Dagurinn
  • Bókanir og verð
  • Gestareikningar
  • Lyklar sjálfkrafa
  • Skilaboð á máli gestsins
  • WhatsApp og tölvupóstur

Veitingastaðurinn · Veitingar

Veitingastaðurinn í sama kerfi

Allt sem veitingastaður á hóteli þarf, frá hópmatseðlum til herbergisþjónustu. Og reikningurinn fer beint á herbergið.

  • Borðabókanir
  • Hópmatseðlar
  • Réttaröð og eldhússkjáir
  • Ofnæmi á miðanum
  • Skipt eftir sætum
  • Herbergisþjónusta
  • Fært á herbergi

Skrifstofan · Fjármál og bókari

Bókað í evrum. Rekið í krónum

Haxa geymir evrurnar frá Booking.com, reiknar krónuvirðið daglega og læsir genginu á réttum tíma.

  • VSK í krónum á læstu gengi
  • Gistináttaskattur á nótt
  • Samfelld númer með kennitölu
  • Kreditreikningar, aldrei breytingar
  • DK · Payday · Business Central · 7C
  • Skýrslur til Hagstofu
  • Fyrra ár til samanburðar, án Excel

Þráðurinn · Eitt stýrikerfi

Einn gestaprófíll

Hver bókun, lykill, þrif, pöntun, skilaboð og reikningur býr í sama kerfinu. Engar óþarfa samþættingar.

  1. Þri 14:02Bókun berst frá Booking.com, 468,00 €.Sölurásir
  2. Fim 09:15Anna innritar sig á netinu og bætir við morgunverði.Gestavefur
  3. Fös 11:40Herbergi 204 þrifið og yfirfarið. Vakt Siggu.Þrif · vaktir
  4. Fös 15:05Koma. Lykillinn fer í símann.Móttaka · lásar
  5. Fös 19:48Kvöldverður á borði 12, færður á herbergi 204 í krónum.Veitingar
  6. Lau 08:30„Seinni útritun?“ Svarað af sama skjá.Skilaboð · CRM
  7. Sun 10:55Útritun. Reikningur í krónum, beint í DK.Bókhald

Áður þurfti sjö kerfi en í Haxa er þetta einn gestaprófíll.

Undirstaðan · Upplýsingatækni og mat

Tengt við það sem hótelið notar

Hvert hótel getur búið til sína eigin API-lykla til að tengja þau kerfi sem það þarf. Sagan fylgir með frá Godo og Booking Factory.

Ísland · Hótelkeðjur

Einn gestaprófíll á öllum hótelunum

Aðskilið bókhald fyrir hvern lögaðila og samantekt fyrir þá sem stýra öllu. Ein innskráning fyrir starfsfólk á öllum hótelum.

  • Mörg hótel
  • Aðskilið bókhald hvers lögaðila
  • Samantektarskýrslur
  • Starfsfólk þvert á hótel

Í daglegri notkun hjá

Hotel Varmaland og 360 Hotel

Fundurinn

Talaðu við fólkið sem smíðar Haxa

Veldu tíma sem hentar þér. 45 mínútur, engar glærur, þínar spurningar.

  • Þitt eigið sýnihótel á eftir
  • Sagan þín flutt yfir
  • Við erum með ykkur á gólfinu við ræsingu
  • Þjónusta frá fólkinu sem smíðar kerfið
  • 15 ár í hóteltækni
  • 100 % í íslenskri eigu og rekstri
  • Smíðað í Reykjavík

Veldu tíma

Sæki lausa tíma…