Eitt kerfi fyrir allt hótelið
Haxa er hótelkerfi smíðað frá grunni fyrir íslensk hótel. Bókanir, móttaka, veitingar, þrif, vaktir og bókhald á einum stað.
Fyrir stærri hótel með teymi í hverri deild og fyrir hótelkeðjur.
Markaðurinn · Sala
Herbergin þín, á öllum sölurásum
Verðin fara á 60+ sölurásir og þína eigin bókunarvél, í réttum gjaldmiðli. Hver bókun lendir beint í kerfinu.
- Sölurásir
- Bókunarvél
- Verð í evrum og krónum
- RoomPriceGenie
Allt húsið · Eigandinn
Allar deildir, eitt kerfi
Móttaka, þrif, veitingar, bókhald og sími gestsins hafa hvert sinn skjá í sama kerfinu. Ekkert að tengja, ekkert sem brotnar.
Herbergin · Þrif
Herbergin verða að áætlun
Útritanir verða að verkefnum, raðað eftir forgangi og send á þann sem er á vakt. Móttakan sér „Tilbúið“ um leið og herbergið er tilbúið.
- Símaapp
- Úttektir
- Bilanir og óskilamunir
- Vaktaplan sem veit hvað er bókað
Innritun · Gesturinn
Innritun á eigin tæki
Anna innritar sig með hlekk á leiðinni frá flugvellinum. Sami kóði opnar útidyrnar og herbergi 204 og hættir að virka við útritun.
- Ekkert app að sækja
- Innritun á netinu
- Einn kóði fyrir allar dyr
- 30+ lásakerfi
- Wi-Fi, leiðarvísir og beiðnir
- Þjónusta á herbergið
- Í útliti hótelsins
Móttakan · Gestamóttaka
Morguninn á einum skjá
Komur, brottfarir, greiðslur og beiðnir dagsins á einum stað. Innritun Önnu, kóðinn og beiðnirnar hennar eru þegar komnar inn.
- Dagurinn
- Bókanir og verð
- Gestareikningar
- Lyklar sjálfkrafa
- Skilaboð á máli gestsins
- WhatsApp og tölvupóstur
Veitingastaðurinn · Veitingar
Veitingastaðurinn í sama kerfi
Allt sem veitingastaður á hóteli þarf, frá hópmatseðlum til herbergisþjónustu. Og reikningurinn fer beint á herbergið.
- Borðabókanir
- Hópmatseðlar
- Réttaröð og eldhússkjáir
- Ofnæmi á miðanum
- Skipt eftir sætum
- Herbergisþjónusta
- Fært á herbergi
Skrifstofan · Fjármál og bókari
Bókað í evrum. Rekið í krónum
Haxa geymir evrurnar frá Booking.com, reiknar krónuvirðið daglega og læsir genginu á réttum tíma.
- VSK í krónum á læstu gengi
- Gistináttaskattur á nótt
- Samfelld númer með kennitölu
- Kreditreikningar, aldrei breytingar
- DK · Payday · Business Central · 7C
- Skýrslur til Hagstofu
- Fyrra ár til samanburðar, án Excel
Þráðurinn · Eitt stýrikerfi
Einn gestaprófíll
Hver bókun, lykill, þrif, pöntun, skilaboð og reikningur býr í sama kerfinu. Engar óþarfa samþættingar.
- Þri 14:02Bókun berst frá Booking.com, 468,00 €.Sölurásir
- Fim 09:15Anna innritar sig á netinu og bætir við morgunverði.Gestavefur
- Fös 11:40Herbergi 204 þrifið og yfirfarið. Vakt Siggu.Þrif · vaktir
- Fös 15:05Koma. Lykillinn fer í símann.Móttaka · lásar
- Fös 19:48Kvöldverður á borði 12, færður á herbergi 204 í krónum.Veitingar
- Lau 08:30„Seinni útritun?“ Svarað af sama skjá.Skilaboð · CRM
- Sun 10:55Útritun. Reikningur í krónum, beint í DK.Bókhald
Áður þurfti sjö kerfi en í Haxa er þetta einn gestaprófíll.
Undirstaðan · Upplýsingatækni og mat
Tengt við það sem hótelið notar
Hvert hótel getur búið til sína eigin API-lykla til að tengja þau kerfi sem það þarf. Sagan fylgir með frá Godo og Booking Factory.
Ísland · Hótelkeðjur
Einn gestaprófíll á öllum hótelunum
Aðskilið bókhald fyrir hvern lögaðila og samantekt fyrir þá sem stýra öllu. Ein innskráning fyrir starfsfólk á öllum hótelum.
- Mörg hótel
- Aðskilið bókhald hvers lögaðila
- Samantektarskýrslur
- Starfsfólk þvert á hótel
Í daglegri notkun hjá
Hotel Varmaland og 360 Hotel
Fundurinn
Talaðu við fólkið sem smíðar Haxa
Veldu tíma sem hentar þér. 45 mínútur, engar glærur, þínar spurningar.
- Þitt eigið sýnihótel á eftir
- Sagan þín flutt yfir
- Við erum með ykkur á gólfinu við ræsingu
- Þjónusta frá fólkinu sem smíðar kerfið
- 15 ár í hóteltækni
- 100 % í íslenskri eigu og rekstri
- Smíðað í Reykjavík




